Almennt - fimmtudagur 21.janúar 2010
Hlíðarfjall skipar stóran sess í hátíðinni þar sem hefðbundin skíði, gönguskíði, telemarkskíði og snjóbretti verða í aðalhlutverki hvort heldur er í keppnum eða einfaldlega sem ljúf dægradvöl fyrir alla. Einnig verður boðið upp á námskeið skíðaiðkun fyrir fatlaða. Í Skautahöllinni verður keppt í listhlaupi, íshokkí, krullu og endurvakin verður bæjarkeppnin í íshokkí þar sem erkifjendurnir Akureyri og Reykjavík takast á.
Hin árlega Vetrarsportsýning sem Félag vélsleðamanna í Eyjafirði stendur fyrir verður aðra helgi í febrúar og sömu helgi verður snjócross og íscross. Einnig verður blásið til keppni í samhliða spyrju á vélsleðum við Skautahöllina.
Þeir sem vilja njóta útivistar með því að ganga eða hlaupa geta tekið þátt í Vetrarhlaupi UFA eða jafnvel Skaflahlaupi UFA. Hestafélagið Léttir stendur fyrir Stjörnutölti, Bílaklúbbur Akureyrar sýnir ísakstur og skátar leggja vetrarþrautir eins og þeim erum einum lagið.
Dagskrá Vetraríþróttahátíð ÍSÍ er að finna á heimasíðu Vetraríþróttamiðstöðvarinnar www.vmi.is og er þessa daga verið að klára að setja hana þar inn.

