Almennt - miðvikudagur 16.júní 2010

Akureyri City Sightseeing er kostur sem verður í boði í sumar fyrir íbúa og gesti Akureyrar. Um er að ræða útsýnisferð með
leiðsögn um bæinn þar sem fólk kaupir sér dagsmiða og getur farið úr og í bílinn aftur á hverri biðstöð.
Bíllinn leggur af stað frá Oddeyrarbryggju á klukkutíma fresti frá klukkan 9–16 og um 45 mínútur tekur að aka hvern
hring.
Biðstöðvarnar eru þrettán og allar vel merktar. Hver farþegi fær kort og bækling með upplýsingum um allar biðstöðvarnar
auk þess sem leiðsögn er í bílnum. Biðstöðvarnar eru eftirfarandi: Oddeyrarbryggja, Upplýsingamiðstöð ferðamála,
Innbærinn (Minjasafnið), Akureyrarflugvöllur, Kjarnaskógur, Hamrar tjaldsvæði, Lystigarður, Sundlaug Akureyrar, Miðbær, Glerártorg og
þaðan um þorpið og niður á bryggju aftur.
Eins og áður segir er þjónustan hugsuð fyrir bæði gesti og íbúa. Einnig verður í boði afsláttur fyrir eldri
íbúa bæjarins. Akureyri City Sightseeing gengur allar helgar og er því góður kostur fyrir þá sem vilja komast inn í bæinn
frá Hömrum eða inn í Kjarnaskóg, fram á flugvöll eða hvert sem er um bæinn.
Fyrsta ferð er á morgun, miðvikudaginn 16. júní, klukkan 10.00 og svo daglega í júlí, en alla daga nema fimmtudaga og föstudaga
í júní og ágúst. Miðinn kostar 10 evrur (1.500 krónur) en hægt verður að greiða í íslenskum krónum, evrum,
sterlingspundum og dollurum o.fl. gjaldmiðlum.

