N4 - fyrir þig

Vegglist á Akureyri Hópur vegglistarmanna hefur verið á ferðinni um Akureyri síðustu daga og skreytt nokkra veggi bæjarins. Hópurinn samanstendur af

Vegglist á Akureyri

Mynd:www.akureyi.is
Mynd:www.akureyi.is

Hópur vegglistarmanna hefur verið á ferðinni um Akureyri síðustu daga og skreytt nokkra veggi bæjarins. Hópurinn samanstendur af sjö vegglistarmönnum frá Reykjavík sem hafa ferðast um landið á síðustu vikum og skreytt veggi landsbyggðarinnar. Hópnum var að sjálfsögðu vel tekið á Akureyri og fékk strax úthlutað vegg á íþróttahúsi Laugargötu.

Að sögn Daníels Stefáns Þorkelssonar, vegglistarmanns, er tilgangur ferðarinnar að kynna vegglistina fyrir landsmönnum. “Okkur hefur allsstaðar verið vel tekið. Við höfum notið aðstoðar góðs fólks við þetta verkefni og hlutum m.a. styrk frá Samtökum ungs fólks í Evrópu sem við notuðum til þess að kaupa yfir 800 hundruð spreybrúsa frá Spáni. Einnig fengum við málningu frá Málning hf. og rúntum með herlegheitin um landið í tveimur bílum og gistum í tjöldum,” segir Daníel.

Ferðin um landið hófst 22. júlí sl. og hefur hópurinn nú þegar staldrað við á Grundarfirði, Flatey, Ísafirði, Súðavík og Skagaströnd. Eftir að Akureyrarheimsókninni lýkur mun hópurinn halda sem leið liggur austur á land.

Myndirnar hér að neðan eru teknar við Sundlaug Akureyrar, Hvannavelli og Kaupfélagsportið, aftan við Rub 23.

Frétt frá http://www.akureyri.is/



föstudagur 10. febrúar - 07:23
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf