
Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals og aðlaðandi götumyndar. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði og veitt viðurkenningar samkvæmt þeim.
Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokkum:
- Flokkur eldri garða.
- Flokkur nýrri garða.
- Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa.
- Flokkur fyrirtækja.
- Flokkur stofnana.
- Fyrirmyndar gata bæjarins.
Dómnefnd ákveður hversu margar viðurkenningar eru veittar í hverjum flokki. Heimilt er að fella niður úthlutun viðurkenningar í einstökum flokkum, ef kröfum verður ekki fullnægt.
Tekið er á móti ábendingum í netfangi jbg@akureyri.is, í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar og í síma 460 1000 til og með 20. ágúst.

