
mynd:www.akureyri.is
Yfir 1600 manns hafa skrifað undir mótmæli á heimasíðunni
http://www.betriakureyri.com/ þar sem staðsetningu
KFC og sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti er mótmælt. Á síðunni kemur m.a. fram; "Ótvírætt er að þessi
fyrirhugaða skyndibita- og eldsneytissala stingur verulega í stúf við sögulega götumynd Akureyrar en um er að ræða lengstu röð húsa
í sama stíl sem við eigum frá Græna hatti alveg að Brynju og jafnvel lengra." Orri Gautur Pálsson, íbúi á Akureyri, stendur fyrir
mótmælunum segist ætla að afhenda bæjaryfirvöldum undirskriftarlistann á miðvikudaginn.