N4 - fyrir þig

N4 rekur tvo miðla; N4 Dagskráin og N4 Sjónvarp. Einnig hönnunardeild, auglýsinga- og markaðsráðgjöf og öfluga framleiðsludeild þar sem framleitt er innlent sjónvarpsefni, kynninga- og auglýsingaefni, en að auki sér framleiðsludeild um upptökur og beinar útsendingar á viðburðum víða um land.

Nýjustu þættirnir

Thumbnail
  • Arsenalskóli í samstarfi við KA
  • Að norðan
  • 19/06/2013 11:14
Thumbnail
  • Kristján Þór vígir nýtt röntgentæki á FSA
  • Að norðan
  • 19/06/2013 10:34
Thumbnail
  • Kvennasögugangan er leyndardómsfull í ár
  • Að norðan
  • 19/06/2013 10:09

Fréttir

Afhentu ágóða Mottuboðsins 2013


Í gær, mánudag, afhenti Klúbbur Matreiðslumeistara á Norðurlandi, Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis formlega, ágóða  Mottuboðsins 2013 sem haldið var í Hofi í mars síðastliðnum. Alls safnaðist 1.877.590 krónur og er það upphæðin sem til þeirra rennur. Afhendingin fór fram á skrifstofu Krabbameinsfélagsins við byrjun aðalfundar hjá félaginu. Júlía Skarphéðinsdóttir formaður klúbbs Matreiðslumeistara á Norðurlandi afhenti Krabbameinfélaginu styrkinn og Hlíf Guðmundsdóttir formaður Krabbameinsfélagsins sem veitti honum viðtöku.

 

Lesa meira

Engin Söngkeppni framhaldsskólanna 2014?

Alda Karen Hjaltalín, framkvæmdastjóri Söngkeppni framhaldsskólanna 2013

Vegna dræmrar mætingu framhaldsskólanema á úrslitakvöld Söngkeppni framhaldsskólanna sem fór fram á Akureyri um helgina er stjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema í fullri alvöru að íhuga hvort  blása eigi keppna af á næsta ári. Þetta er meðal þess sem Alda Karen Hjaltalín, framkvæmdastjór Söngkeppni framhaldsskólanna 2013 segir í viðtali í þættinum Að norðan á N4 í kvöld kl:18:00. Um 1700 armbönd voru seld á keppnina í ár, en tæplega þúsund manns mættu á úrslitakvöldið. 

 


Tuttugu hundum beitt fyrir sleða

Mynd:www.heida.is
Haraldur Ólafsson setti óopinbert Íslandsmet um liðna helgi þegar hann beitti tuttugu hundum fyrir sleða sinn. Haraldur sagði að dagurinn hefði verið frábær og sérlega skemmtilegt hefði veriðað fá móður, Hjördísi Jónsdóttur, sína með sér einn hring. 



Lesa meira

fimmtudagur 20. júní - 01:12
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf